Privacy policy

Seljandi vöru er Fallegt ehf. Dyngjubúð 4, 360 Hellissandur
Kt. 440423-1080 VSK nr. 148777
Athugasemdir eða kvartanir skulu sendast á bjarmispeglar@gmail.com



Vefverslun
Fallegt ehf. / Bjarmispeglar.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörur án fyrirvara. Öll verð á vefsíðu www.bjarmispeglar.is er sýnt með virðisaukaskatti og er birt með fyrirvara um innsláttarvillur og verðbreytingar.
Vöruupplýsingar koma beint frá okkar birgjum, allar upplýsingar á vefnum eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur og mistök við merkingar.
Við reynum að hafa birgðastöðu okkar sem réttasta. Sé vara ekki til á lager þegar pöntunin er tekin saman er haft samband við viðskiptavin og/eða vara/pöntun endurgreidd.


Afhending vöru
Pöntun telst fullkláruð þegar greiðsla hefur borist, allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar, Fallegt ehf. / bjarmispeglar.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Fallegt ehf. / bjarmispeglar.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda, nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Póstsins.


Ábyrgðarskilmálar
Tilkynningar um galla eða skemmdir skal senda á bjarmispeglar@gmail.com meðfylgjandi skulu vera upplýsingar um kaupanda, pöntun, vöru og myndir af galla/skemmd.
Almenn ábyrgð til 2 ára gildir á öllum raftækjum nema annað sé tekið fram. Gildir ábyrgðin frá dagsetningu á kvittun og telst aðeins gild sé kvittun til staðar. Ábyrgðin gildir aðeins fyrir upprunalegan kaupanda.

Fallegt ehf. / bjarmispeglar.is ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem hlýst að völdum heimsendingaraðila, hvort sem það er seinkun á afhendingu, röng afhending eða tjón við flutning. Þá ber Fallegt ehf. / bjarmispeglar.is ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem hlýst að völdum utanaðkomandi aðstæðna, svo sem náttúruhamfara, veðurs, verkfalla eða þess háttar.


Fallegt ehf. / bjarmispeglar.is ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem hlýst vegna galla eða bilunar vöru eða vegna notkunar á vörunni.
Ábyrgðin fellur úr gildi komi í ljós að bilun komi út frá rangri meðferð á vörunni og ef leiðbeiningum er ekki fylgt við uppsetningu og viðhald á vörunni.
Ábyrgðin nær ekki yfir það sem má teljast sem eðlilegt slit á búnaði og vöru eða skemmda vegna veðurs.


Sé varan gölluð ber Fallegt ehf. / bjarmispeglar.is að bjóða viðgerð, nýja vöru, afslátt eða endurgreiðslu. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup. Fallegt ehf. / bjarmispeglar.is áskilur sér þann rétt að meta hvaða leið skal fara hverju sinni.


Greiðsluskilmálar
Hægt er að greiða fyrir vefpantanir í gegnum örugga og vottaða greiðslusíðu/tengingu við Teya Iceland hf.


Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi.